Kjánar enn á ferð

Nú koma vitsmunabrekkur í hrönnum, fremstur yfirstyrkþegi Hrunverjaflokksins, Guðlaugur Þór. "Snati fjármagnsins ". Hunverjar ullu umheiminum tjóni upp á þúsundir milljarða í hruninu. Engu máli skiptir, þótt skrifaðar verði margar skýrslur um, að Bretar skuldi okkur fimm milljarða vegna hryðjuverkalaga. Í raun skuldum við samt umheiminum þúsundir milljarða vegna hryðjuverka okkar manna. Hryðjuverkin voru framin í andrúmslofti löglausra fjármála, sem Davíð , Geir, Halldór og Solla höfðu efnt til. Sjóræningjarnir voru eigendur banka og bankastjórar, sem allir voru gallharðir kjósendur Sjálfstæðisflokksins. Okkur sæmir illa að ýfa upp þennan skandal og allra sízt sækjum við gull í greipar Breta. Svo sannarlega eru Íslendingar hryðjuverkamenn, og þess vegna voru sett á okkur hryðjuverkalög.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband